föstudagur, ágúst 17, 2007

adios

jæja þá er komið að því að familían leggi lönd undir fætur, flug til Frankfurt í fyrramálið og við tekur flakk um suður Þýskaland og Tékkland næstu tvær vikur. Svona að skilnaði er hérna Faðir vorið :)


Faðir vor

Faðir vor kallar kútinn,
Kútinn hann Jesú til sín;
“Nú lærirðu, kúturinn, besta bútinn,
Úr bænunu, rétt upp á grín

Ég, sem hæstur á himni
helgist mitt örstutta nafn.
Til komi fríkað og reisulegt ríki
með rjúpuhvítt englasafn.

Í öllu verði minn vilji
það virkar svo einfalt og gott.
Á jörðu sem himnum ég losa úr limnum
í laumi mitt frelsaraplott.

Svo gef ég deig í mitt daglega brauð
á degi hverjum og fyrirgef nautum
sem skulda kúnum, og ef kýrin er dauð
ég kem henni aftur á legg
Ég fikta með fjörmikil egg
Ég er fjörgamall maður með skegg.

Ég forðast að leiða í freistni
en frelsandi brjóstkassan þen
Því mitt er jú ríkið, svo komið og kíkið
í kaffi og meððí, amen”

laugardagur, ágúst 11, 2007

gáfur

"Það er mikil gáfa að vita hvenær er best að þegja" stundum virðist ég eitthvað gleyma því ..................