mánudagur, júlí 16, 2007

sumarfrí

Dagur 1 í sumarfríi :) ljómandi huggulegt, sól og sumarylur utandyra. Við mæðgur höldum okkur nú samt innandyra í dag amk. Einkadóttirin með eyrnabólgu, mjög veik í fyrri nótt og í gær, eiturhress í dag. Planið var að bruna afstað í kvöld í ferðalag um suðurlandið með mömmu, pabba, Helgu, Ásbirni og Guðrúnu Söru, eitthvað raskast það skipulag. Getum vonandi elt þau uppi einhvern næstu daga, þ.e. ef þau komast af stað, eitthvað bras með húsbílinn hjá ma og pa.
Vorum í sumarbústaðnum í Grímsnesi um helgina ásamt fullt af fólki, líf og fjör þar. Annars gengur lífið sinn vanagang og ekkert markvert að frétta.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home