sunnudagur, júlí 01, 2007

enn af flakki fjölskyldunnar.... vorum að koma heim úr sumarbústaðnum í Grímsnesi. Fórum þangað í gær í afmælisboð til Línhildar, vorum þar í nótt, voða huggulegt. Skruppum svo smá sveitarúnt að skoða búskaparhætti á suðurlandi og kíktum við á Draugasetrinu á Stokkseyri. Ekki fannst Unni Lilju það skemmtilegt safn, dimmt og drungalegt. Ég hélt þetta væri miklu meira spúkí og skemmtilegt. En amk búin að labba hring í þarna. Fengum okkur svo humar á veitingahúsinu "Við fjöruborðið". Oft hefur hann nú verið betri, kokkurinn hefur örugglega gleymt humrinum á eldavélinni og sett amk einn stauk af grófmöluðum pipar yfir. Varð fyrir miklum vonbrigðum, hef hingað til fengið góðan humar þarna. Svo var brunað í bæinn til þess að vera nú ÖRUGGLEGA á undan aðalumferðinni seinnipartinn. Komum heim um 5 og sluppum við hægakstur yfir heiðina.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home