erfitt að vera frægur í Afganistan
Bóksalinn í Kabúl óskar eftir hæli í Noregi
Bóksalinn í Kabúl, Shah Mohammad Rais, hefur óskað eftir hæli í Noregi en norsk stjórnvöld eru treg til að veita honum það.
Þau hafa óskað eftir upplýsingum frá Afganistan um hvort rétt sé að ógnir steðji að bóksalanum í Afganistan.
Hugsanlegt er að bóksalinn missi þá tímabundnu vegabréfsáritun sem hann hefur nú þegar til Noregs.
Mohammad Rais hefur sagt frá því í norska blaðinu Aftenposten að honum hafi fundist sér og fjölskyldu sinni ógnað eftir að bók norska blaðamannsins Åsne Seierstad kom út í Afganistan. Í bókinni er lífi fjölskyldunnar og þá sérstaklega kvennanna lýst.
"Ég held að það sé gott að búa í Noregi," segir bóksalinn í Kabúl.
Hann segir sína hlið í bók sem um þessar mundir kemur út í Noregi.
2 Comments:
Nauhh! Ég vissi þetta ekki, las bókina sem mér finnst mjög góð athyglisvert að bóksalanum sé núna ógnað.
kv. KB
AHA!!!!!!
Skrifa ummæli
<< Home