þriðjudagur, október 26, 2004

þessi dagur var the evil meeting day, á 8 klst vinnudegi voru 5 stk fundir!!! verð að viðurkenna að ég er frekar andlaus eftir daginn og þægilegur stóll + teppi + hekludót hljómar gífurlega vel sem kvöldplan. En well annað er fátt að frétta hér á bæ. 2 vinnudagar eftir þar til útlönd bresta á :) best að tala sem minnst um það hummmmmmm einhverjir frekar abbó yfir því .... læt sem ég heyri það ekki. Já og ekki gleyma því að ég eignaðist nýja frænku í dag, Steinunn og Björgvin eignuðust stúlku. Fékk sms frá nýbökuðum stoltum pabba í hádeginu og er einmitt líka að tala við montna guðmóður á msn í þessum pikkuðu orðum. Læt þetta duga í bili, þarf að þvo af mér spjarirnar svo ég eigi hreina flík til að fara í út :) :)

trallalala lallalala síja leiter

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home