sunnudagur, október 17, 2004

Þá er þessi helgi þotinn framhjá á ógnarhraða. Við búin að skreppa á skagann og skila barninu sem við vorum með um helgina. Ferlega þægilegt að skila eftir vissan tíma hehehe. Annars er þetta búið að vera ferlega gaman hjá okkur. við Gestur fórum með 6 stk börn á aldrinum 5-11 ára í bíó í gærkvöldi, púffffffffffff dálítið mikið að gera að fylgjast með öllum og kaupa popp og kók á línuna. Ágætist reynsla áður en 6 burarnir fæðast. Í dag var svo afmæli hjá Halla, fyrsti afmælisdagurinn hans. Pilturinn sá er ansi kraftmikill og töluvert síðan hann fór að ganga. Á morgun er svo trúlofunarafmæli hjá okkur skötuhjúum :) Já þannig er nú það. En nú bíður 007 eftir mér og ilmandi og heit hróar hattar pizzza mmmmmmmmm bara næs. Til hamingju með væntanlega vinnuviku. b

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home