mánudagur, ágúst 28, 2006

enn úr fréttum!!!!!

Hraðahindrunum stolið

Hraðahindrunum, sem voru í götunni Hrafnakletti í Borgarnesi, var stolið í nótt, að því er kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld. Þeir sem voru að verki hafa lagt á sig umtalsverða vinnu því þessar tvær hraðahindranir sem stolið var voru hvor um sig skrúfaðar niður með tæplega 40 boltum.

Fram kom í fréttum Sjónvarpsins, að hraðahindranirnar hafi farið í taugarnar á sumum ökumönnum vegna þess að þær hafa þótt háar og brattar.

Stuldurinn hefur verið kærður til lögreglu. (www.mbl.is)


Ýmislegt sem fólk leggur á sig verð ég að segja...... mér leikur forvitni á að vita hverjum datt þetta í hug og framkvæmdi. Þessar hraðahindranir voru nú ekki einu sinni í fáförnustu götunni í bænum ónei, nei..... Það hljóta einhverjir að hafa séð til þessa húmorista að störfum.

1 Comments:

At 1:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

hehehe snillingar! Mig vantar einmitt eina hraððahindrun fyrir utan hjá mér spurning um að fara í vettvangsferð um nágrennið kv KB

 

Skrifa ummæli

<< Home