mánudagur, mars 06, 2006

þátturinn vaðið úr einu í annað.

annasöm helgi að baki. Gaman að því, gott að hafa nóg fyrir stafni. Við smelltum okkur í sveitina á föstudag og áttum þar náðuga daga fram á sunnudagseftirmiðdag er við brunuðum í matarboð til tengdó og síðan þaðan í Þjóðleikhúsið. Við fórum að sjá Túskildingsóperuna og ég get í sannleika sagt ekki mælt með því verki. Vinnan hans Gests ákvað að smella sér saman á þetta feiknaverk full tilhlökkunar, tilhlökkuninn dugði nú ekki til að halda öllum á sýningunni allan tíman. Einhverjir laumuðu sér út í hléi. Við vorum hetjur og héldum þetta út!!! enda annnálaðar hetjur.
Merkilegt hvað veðurfar hefur áhrif á pirringsstig í fólki. Vorum einmitt að ræða þetta í morgun í vinnunni hvað flestir væru pirraðir og kveikiþráðurinn stuttur. Viti menn tveimur tímum seinna small á jarðskjálfti sem hrissti aðeins upp í fólki. Greinilega verið komin spenna í loftið sem hreinsaðist síðan út með skjálftanum. Annars er ég alltaf jafnánægð í vinnunni og gengur þokkalega, ja ég veit ekki betur amk. Held það séu ekki margir sem hafi hætt vegna þess hve þeir fengu lélega þjónustu, nú ef einhver veit betur þá endilega láta mig vita. Þar sem ég er nú þekkt fyrir að vera þáttastjórandi í þættinum vaðið úr einu í annað þá er best að ræða aðeins páskana. Hafið þið spáð í hve stutt er í páska???? ekki nema 6 vikur og jólin voru í gær, hvernig er þetta eiginlega???? ævin verður búin áður en mar getur litið við!!!!! Hestastúss gengur fínt, farin að þora á bak á Prinz og gengur bara vel, Halli er nú að þjálfa hann líka svo klárinn fær víst örugglega næga hreyfingu. Strákur þessi elska durtast í gerðinu og passar að þeir tveir fái meira en nóg pláss og hleypir engum nærri!!!! bara krúttlegt. Á það reyndar líka til að smella sér í að smala hinum hrossunum í nokkra hringi, hleypur á eftir hópnum með gapandi gin og lætur þá sprikla. Þarf nú að stoppa það mál ef það gengur út í öfgar. Get samt ekki annað en hlegið að þessu, yrði líklega brjál ef einhver annar ætti þennan hest. Finnst það mjög trúlegt.
læt þetta gott í bili......

3 Comments:

At 9:53 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Tinna Björk sagði allt í einu í gær mamma það er alveg ógislega langt síðan við fórum á hestbak og það er rétt hjá henni hún fór síðast fyrir að ég held 2 árum á bak og það er soltið langt þegar maður er bara að verða 5 ára.
Verðum að kíkja í sveitina í vor.

Gott að heyra frá þér annars ert greynilega hress og kát að vanda.

 
At 4:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

jo ég er hress og kát :) ykkur er nú líka mjög svo velkomið að kíkja til okkar að Heimsenda 7 við tækifæri og bæta úr þessu hestaleysi hjá dömunni og Arnari
kv. Guðbjörg

 
At 12:11 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

já mikið væri það nú gaman.
Hvar er nú heimsendi ?

 

Skrifa ummæli

<< Home