miðvikudagur, febrúar 08, 2006

vetur

vinnuvikan hálfnuð ja eða svo er sagt, hef ekki farið í vinnu þessa vikuna vegna flensuskratta sem náði sér góðri bólfestu hjá mér um síðustu helgi og hefur neitað að yfirgefa mig þrátt fyrir alskonar ógeðsdrykki sem eru þess eðlis að hrekja svona óværu úr kroppum fólks. Ætla að mæta galvösk á morgun.
Þorrablótið um síðustu helgi var mjög ánægjulegt :) góður matur, góð skemmtiatriði, skemmtilegt fólk osfrv. Þið gerið ykkur síðan grein fyrir því að það eru rétt tæplega 11 mánuðir til jóla !!!!! sem verða gasalega fljótir að líða.....
Prinz og Strákur eru komnir í hús þeim til ómældrar gleði hef ég trú á ..... je right ætli þeir vildu nú ekki frekar vera frjálsir út í haga með nóg af heyi og leika sér við alla hina hestana. Bíð eftir að hægt sé að járna og Halli hafi tíma til að fara á bak á Prinz áður en ég fæ leyfi til að fara á bak honum þ.e. Prinz ekki Halla!!! bara til að forðast allan misskilning. Skil ekkert í þessum körlum að leyfa mér ekki að fara fyrstri en sko hin hliðin er síðan að ég varla þori því!!!! en það er nú bara okkar á milli, léti mig örugglega hafa það. Heiti nefnilega Hetja Gvends bara svona ef einhver væri búin að gleyma því.
Mikil gleði hjá mér að það sé komin smá snjór svona rétt til að lifga upp á umhverfið, birtuna og tilveruna. Er alveg komin með upp í háls af þessari skrambans rigningu, roki og myrkri........

2 Comments:

At 12:52 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Vona að þú sért orðin hress og kát.
Virðist reyndar alltaf vera kát svo ég vona að þú sért laus við flensuna

Sirrý

 
At 11:35 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

o takk takk takk, ég er reyndar ennþá heima með flensuskrattann!!!! en er í miklum bardaga við hana og hef hug á að vinna hið snarasta.
kveðja
Guðbjörg

 

Skrifa ummæli

<< Home