laugardagur, september 30, 2006

smá status report

well well :) hafið þið spáð í hvað það er stutt í jólin??? tæpir þrír mánuðir, ljómandi alveg hreint. Bumbubúinn heldur sér sem fastast í móðurkviði og sýnir ekki á sér neitt fararsnið af þeim stað. Gerð var tilraun til að ýta við honum síðasta miðvikudag sem augljóslega hafði engin áhrif, næsta tilraun verður gerð á mánudag nema viðkomandi verði komin í heiminn þá, sem væri bara ljómandi fínt.

Ma og Kristjana eru á fjöllum um helgina, eldabuskur í annarri leit og skemmta sér án efa konunglega í húmorflæðinu hjá misgáfulegum leitarmönnum. Kapteinarnir af Kapteinsflöt eru þar á meðal manna og án efa skemmta sér og öðrum.

over and out :)

6 Comments:

At 11:38 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Spennandi!.. tilkynningaskylda á síðunni.. um leið og eitthvað gerist:)

 
At 11:39 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

gleymdi að segja.. gangi þér ofsa ofsa vel!.. pís of keik..

 
At 12:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

vonandi fer nú bumbubúinn að láta sjá sig... gangi ykkur rosa vel, við hugsum oft til ykkar. Bíðum spennt eftir fréttum :o) hvernig sé ég myndir? er það önnur slóð?

 
At 8:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

spennandi spannandi :)
Gangi ykkur vel

 
At 11:28 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég kíki hér við daglega og bíð eftir fréttum. Sendi góða strauma...Gangi ykkur vel!!!

 
At 11:30 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert ekkert að hugsa um að bíða með þetta fram að jólum þó það sé stutt í þau, er það nokkuð? Nei nei, það kemur bara þegar það er tilbúið, gangi ykkur rosalega vel, hlakka til að fá fréttir :)

 

Skrifa ummæli

<< Home